Bloggarar

 

 

Tech Ed

Þar sem ég er að fara á nördaráðstefnu (Tech Ed) í Orlando í dag og kem ekki aftur á klakann fyrr en 10. júní gæti það jafnvel gerst að ég breyti útaf vananum og smelli einhverju hérna inn reglulega. Á þessu tímabila amk.
Ég vil þó endurtaka JAFNVEL!!!
1/6/2007 -


Hvítasunnudagur

Við Siggi Alf notuðum gærdaginn í veiði í Elliðvatni og Ölfus,
Og ótrúlegt en satt þá veiddist eitthvað á báðum stöðum.
28/5/2007 -


Kominn í föndrið

Við hittumst nokkrir í gærkvöldi til að föndra og var árangurinn vægast sagt stórkostlegur.
Það verður spennandi að sjá hvernig föndrið hjá okkur stendur sig í veiðinni í sumar.
24/3/2007 -


Helgin

Það er eiginlega ekki hægt að segja annað en að síðasta helgi hafi verið algjör snilld.
Ég, Siggi og Arnar rendum norður á föstudaginn strax eftir vinnu. Siggi keyrði þannig að það var lítið annað að gera fyrir okkur Arnar en að fara strax í bjórinn. Helgin er síðan öll í einhverri undarlegri en skemmtilegri móðu eftir það, en sem "betur fer" var Siggi með myndavélina á lofti þannig að ég gat rifjað þetta að einhverju leiti upp með því að skoða myndirnar hans.
6/3/2007 -


Akureyri

Stefnan er sett á á Akureyri um helgina þar sem stefnt er að því að skella sér á bretti og hella vel í sig í leiðinni.
Jafnvel að maður kíkjí eitthvað út á lífið :)
1/3/2007 -


Allt að gerast

Þó svo að það sé töluvert síðan ég uppfærði þessa síðu þá hefur nánast ekkert gerst. Hjá mér amk.
Ég sótti reindar um hreindýr einhvertíman í vetur og viti menn ég fékk leyfi á belju á svæði 3. Og þrátt fyrir að Rikki hafi haldið ræðu yfir mér hversu aumingjalegar þessar veiðar eru og ég gæti allt eins farið í eitthvert fjósið og skotið belju þá er stefnan sett á að halda til veiða í mjög svo góðum hóp þar sem að við Siggi Vals munum skjóta sitthvorn sakleysingjann.
23/2/2007 -


NBA

Tímabilið í NBA hefur byrjað vægast sagt undarlega. Liðin sem voru að standa sig hvað best í fyrra eru að drulla uppá bak núna, og liðin sem gátu ekki drullu í fyrra eru að brillera núna.
Philadelphia og meira að segja Utah hafa unnið alla sína leiki só far. Hvaða rugl er það?
6/11/2006 -


IKEA

Á sunnudaginn ákvað ég að gera soldið sem ég hef ekki komið í verk í rúmt ár. En það er kaupa mér sófaborð.
Fyrir mér hljómar það vægast sagt óspennandi að fara í húsgagna verslunarferð, sem að væntanlega útskýrir afhverju það hefur tekið mig svona langan tíma að fjárfesta í einu skitnu borði. Verandi karlmaður (að mínu mati amk.) fór ég að sjálfsögðu í einu húsgagnaverslunina sem ég vissi um, IKEA. Á leiðinni í IKEA hringdi Siggi Vals í mig, en þegar ég sagði honum hvaða missioni ég væri í sagði hann mér að hann hefði heyrt að það tæki mann sirka 2 tíma bara að komast í gegnum nýju búðina hjá IKEA.
Verandi með þessa verslunar fóbíu sem ég er með stressaðist ég að sjálfsögðu allur upp og leist vægast sagt í illa á stöðuna. Ég sá hinsvegar að það eina sem ég gat svo sem gert, þar sem að mig virkilega vantaði sófaborð, var að reyna að gera þetta eins hratt og mögulega væri hægt. Þetta endaði sem sagt í því að ég hleyp í gegnum alla verslunina, hrindandi fjölskyldum með barnavagna frá mér, gríp eitthvað sem ég hélt að væri sófaborð og kem mér síðan út eins hratt og ég get.
Mér til mikillar gleði tók þetta ferli mig einungis 20 mín. og var ég bara þokkalega sáttur.
Hvort að ég keypti rétta hlutinn er síðan allt annað mál.
30/10/2006 -


Nekt

Eitthvað var Bylgja að biðja um meira blogg frá mér eða jafnvel nektarmyndir. Þar sem að ég hef enga nennu í að blogga eitthvað ákvað ég að setja bara inn þessa nektarmynd af mér.
28/10/2006 -


ARRRGHHHH

Hvað er skemmtilegra en að vera búinn að forrita svo dögum skiptir og nota float óspart til þess eins að komast að því að float er rusl sem virkar ekki (kannski soldið litað af pirringi mínum í augnablikinu)??? Það er bara fátt skemmtilegra held ég.

Og já ég er nörd!
4/10/2006 -